Fara á efnissvæði

Heilsueflandi samfélag

Heilsueflandi samfélag er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl. Í Heilsueflandi samfélagi er heilsa og líðan allra íbúa í fyrirrúmi í allri stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum og allir geirar hafa hlutverk. 

 

Heilsueflandi samfélag er landsnet Íslands fyrir WHO Healthy Cities.

Hafið sam­band við verkef­nastjóra em­bæt­tis landlæk­nis geg­num  net­fangið samfelag@landlaeknir.is fyrir frekari up­plýsin­gar.

Áhrifaþættir heilsu og vellíðanar

Unnið er með áhrifaþætti heilsu og vellíðanar s.s. félags-, efnahags- og menningarlegar aðstæður, manngert og náttúrulegt umhverfi til að skapa sem ákjósanlegastar aðstæður í lífi, leik og starfi fyrir fólk á öllum æviskeiðum. Holla valið þarf að vera eins auðvelt og kostur er s.s. að hreyfa sig, borða hollt, rækta geðið og ástunda grænan lífsstíl á sama tíma og spornað er gegn áhættuhegðun s.s. neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna.

Samþætt heilsuefling

Stuðningur við starf Heilsueflandi leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, og einnig Heilsueflandi vinnustaða er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags. Heilsueflandi Efri ár er jafnframt liður í Heilsueflandi samfélögum og snýr að þeim þáttum sem hafa áhrif á heilsu og vellíðan eldra fólks. Í starfinu er rík áhersla á samþættingu og samræmi við annað starf sem miðar að sama marki og starf Heilsueflandi samfélags. 

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna markvisst, heildrænt og byggt á bestu þekkingu að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. 

 Leiðarljós Heilsueflandi samfélags:

  • Virk þáttaka samfélagsins í heild, þ.m.t. hagsmunaaðila úr öllum geirum.
  • Starfið byggir á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma
  • Valda ekki skaða - do no harm
  • Jöfnuður til heilsu með almennum aðgerðum og aðgerðum sem taka mið af þörfum viðkvæmra hópa.
  • Sjálfbærni, leggja áherslu á að skipuleggja starf og árangur til lengri tíma litið.

Gagnadrifið starf

Markvisst lýðheilsustarf felur í sér notkun lýðheilsuvísa, gátlista og annarra gagna til að meta stöðuna og forgangsraða í samræmi við þarfir hverju sinni. Unnið er með áhrifaþætti heilbrigðis og vellíðanar, s.s. félags-, efnahags- og menningarlegar aðstæður, manngert og náttúrulegt umhverfi til að stuðla að vellíðan allra. Árangursrík innleiðing Heilsueflandi samfélags, skóla og vinnustaða styrkir þannig allar þrjár grunnstoðir sjálfbærni þ.e. félagslega, umhverfislega og efnahagslega þætti. 

Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku. Hún ræðst af samspili einstaklinga við sitt nánasta umhverfi og aðstæður - WHO, 1948

Lýðheilsa felur í sér markvissar aðgerðir hins opinbera, nánar tiltekið ríkis og sveitarfélaga, og annarra sem miða að því að bæta heilsu, líðan og lífsgæði þjóða og þjóðfélagshópa - WHO, 1998.