Fara á efnissvæði

Gátlistarnir

Heilsueflandi samfélag er nálgun, þar sem samfélögum gefst m.a. færi á að vinna með mismunandi gátlista sem ýta undir heilsueflingu íbúa, starfsfólk og annarra aðila sem koma að heilsueflingu í samfélögum. Yfirferð þeirra veitir innsýn í stöðuna og í framhaldi eru þeir, ásamt lýðheilsuvísum og öðrum gögnum, vinnutæki til að halda utan um starfið og meta framvindu þess. 

Hér að neðan má sjá alla gátlistana í heild sinni.

Gátlistar

Hvernig virka gátlistarnir?

Gátlistar Heilsueflandi samfélags eru sjö talsins og innihalda viðmið um skipulag HSAM starfsins og hvaða þætti ætti að leggja áherslu á þegar skapa á umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan fyrir öll (sjá Regnbogann). Viðmiðin eru metin á likert skala frá 1-5, þar sem 1 = ekki komið til framkvæmda, 2 = að litlu leyti komið til framkvæmda, 3 = að hluta til komið til framkvæmda, 4 = að miklu leyti komið til framkvæmda, 5 = að fullu komið til framkvæmda.

Tilurð gátlistanna

Gátlistarnir voru fyrst unnir af sérfræðingum Embættis landlæknis og síðan þróaðir áfram í víðtæku samráði við ráðuneyti, stofnanir, félagasamtök, staðbundna verkefnastjóra og aðra hagaðila. Endanleg útgáfa byggir því á þverfaglegu samstarfi og ábendingum frá þeim sem koma að heilsueflandi starfi.