Fara á efnissvæði

Lýðheilsuvísar

Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem veita yfirsýn yfir heilsu, líðan og lífsskilyrði íbúa á hverjum tíma. Á mælaborði lýðheilsuvísa má skoða gögn á aðgengilegan hátt, sjá þróun yfir tíma og bera saman niðurstöður eftir svæðum. Þannig hjálpa vísarnir til við að greina stöðuna og varpa ljósi á styrkleika og áskoranir sem skipta máli fyrir heilsueflingu og forvarnir.

Munur á heilsu og líðan milli svæða er þekkt fyrirbæri víða um heim. Til að draga úr slíkum mun þarf að fylgjast reglulega með mælikvörðum sem varpa ljósi á stöðuna, miðla niðurstöðum og þannig styðja við markvissa forgangsröðun aðgerða á vegum ríkis og sveitarfélaga. Hjá Embætti landlæknis er unnið að heilsueflingu á heildrænan hátt í gegnum verkefnin Heilsueflandi samfélag, Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla og Heilsueflandi vinnustaði. Lögð er áhersla á að skapa umhverfi og aðstæður sem efla heilsu og vellíðan allra. Með svæðisbundnum lýðheilsuvísum og stuðningi Heilsueflandi samfélags geta sveitarfélög, heilbrigðisþjónusta og aðrir hagsmunaaðilar sameinast um markvissar aðgerðir til að bæta heilsu og líðan íbúa.