Fara á efnissvæði

Um Heilsueflandi samfélag

Á þessum vef er að finna upplýsingar og verkfæri fyrir vinnu við Heilsueflandi samfélag. Heilsueflandi samfélag er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl. 

Heilsueflandi samfélag
Spila myndband

 

 

Af hverju Heilsueflandi samfélag?

Fólk lifir lengur á meðan hlutfall fæðinga minnkar sem felur í sér tækifæri en einnig ýmsar áskoranir fyrir samfélög. Stjórnvöld verða að velja hagkvæmar leiðir til að viðhalda og bæta heilsu og færni fólks á öllum æviskeiðum. Markvisst lýðheilsustarf, sem sem byggir á bestu þekkingu á hverjum tíma hefur fjölþætt gildi fyrir ríki, sveitarfélög, einstaklinga og aðra hagsmunaaðila. Ef vel tekst til við innleiðingu Heilsueflandi samfélags má vænta að andleg, líkamleg og félagsleg heilsa og vellíðan íbúa verði betri en annars, jöfnuður verði meiri sem og öryggi og lífsgæði almennt

Heilsuefling eru lýðheilsuaðgerðir þar sem markvisst er unnið með áhrifaþætti heilbrigðis til að skapa umhverfi og aðstæður sem auðvelda fólki að hlúa að heilsu sinni og vellíðan. Slíkar aðgerðir geta bæði miðað að því að efla einstaklingabundna þætti og ýmsa þætti í nánasta umhverfi markhópsins hverju sinni - WHO, 2021

Bakgrunnur Heilsueflandi samfélaga

Á Íslandi eru sterkar forsendur fyrir markvissu lýðheilsustarfi. Heilsa og vellíðan ráðast ekki aðeins af heilbrigðisþjónustu heldur einnig af aðstæðum í daglegu lífi fólks, svo sem menntun, atvinnu, húsnæði, félagslegum tengslum, umhverfi, samgöngum og tækifærum til heilsusamlegra lifnaðarhátta.

Lýðheilsustarf á Íslandi byggir á ýmsum lögum, stefnum og áætlunum sem styðja við heilsueflingu, forvarnir og aukna vellíðan. Í lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007 kemur fram að embætti landlæknis hafi það hlutverk að efla lýðheilsu og stuðla að því að lýðheilsustarf og heilbrigðisþjónusta byggist á bestu þekkingu og reynslu hverju sinni. Lýðheilsustefna til ársins 2030 og Heilbrigðisstefna til ársins 2030 styðja einnig við heildstæða nálgun þar sem áhersla er lögð á heilsueflingu, forvarnir og jöfnuð til heilsu.

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í þessu samhengi, enda hafa þau mikil áhrif á nærumhverfi íbúa og daglegt líf þeirra. Í stefnumótun Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið lögð áhersla á samstarf við embætti landlæknis um heilsueflingu, forvarnir og innleiðingu lýðheilsustefnu. Heilsueflandi samfélag, HSAM, er ein af meginleiðum embættis landlæknis til að styðja sveitarfélög í markvissu lýðheilsustarfi. Verkefnið byggir á þeirri nálgun að heilsa verði til í samfélaginu sjálfu og að ákvarðanir sveitarfélaga geti haft mikil áhrif á heilsu, líðan og lífsgæði íbúa. Markmið HSAM er að styðja sveitarfélög við að vinna heildstætt, kerfisbundið og gagnadrifið að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsu og vellíðan allra.

Reykjavíkurborg og Mosfellsbær voru fyrstu sveitarfélögin til að undirrita samning um Heilsueflandi samfélag við embætti landlæknis árið 2013. Síðan þá hefur verkefnið vaxið hratt og í dag býr yfir 96% landsmanna í sveitarfélögum sem hafa gert slíkan samning.