Fara á efnissvæði

Framkvæmd

Heilsueflandi samfélag er samfelld og markviss vinna sem styður við vellíðan allra íbúa til lengri tíma. Að verða Heilsueflandi samfélag er markvisst ferli sem byggir á samstarfi, stöðumati og aðgerðum sem styðja við vellíðan allra íbúa. Sveitarfélagið tekur sjálft frumkvæði að þátttöku og vinnur starfið í samvinnu við og með stuðning frá Embætti landlæknis, heilsugæslu og aðra lykilaðila í samfélaginu. Til þess að taka þátt þarf að hafa samband við embætti landlæknis í gegnum tölvupóstfangið samfelag@landlaeknir.is. Borgarstjóri og landlæknir skrifa svo undir samning sem veitir þáttöku. Samningar um Heilsueflandi samfélag fela meðal annars í sér skuldbindingu um að vinna í samræmi við yfirmarkmið og leiðarljós verkefnisins, að skipa verkefnastjóra Heilsueflandi samfélags og að stofna þverfaglegan stýrihóp sem leiðir og knýr áfram innleiðingarferli stefnunnar. Í kjöl­far­ið fá um­sæk­jen­dur sen­dann tölvupóst með að­gang að ei­gin lokuðu svæði fyrir Heil­sue­flan­di samfélög á heil­sue­flan­di.is.

Gátlistinn um Vellíðun með markvissu lýðheilsustarfi er leiðarvísir fyrir þessa vinnu og hjálpar sveitarfélögum að tryggja að unnið sé með skipulögðum og markvissum hætti að uppbyggingu heilsueflandi samfélags. Hægt er að nálgast hann hér.

Ferlið í fimm skrefum

Skref 1 - Stöðumat og þarfagreining
Metin eru heilsa, líðan og áhrifaþættir heilbrigðis með lýðheilsuvísum, gátlistum, staðbundnum gögnum og samráði við íbúa og hagaðila.

Skref 2 - Stefnumótun
Mótuð er sameiginleg sýn og markmið sem byggja á niðurstöðum stöðumats og leiðarljósi Heilsueflandi samfélags.

Skref 3 - Aðgerðaáætlun
Gerð er raunhæf áætlun sem tekur mið af þörfum, forgangsröðun og getu sveitarfélagsins.

Skref 4 - Innleiðing aðgerða
Aðgerðum er hrint í framkvæmd í samstarfi við viðeigandi aðila og þær aðlagaðar eftir þörfum.

Skref 5 - Mat á framvindu og umbætur
Framvinda er metin reglulega með gögnum, gátlistum og endurgjöf til að efla árangur og styðja við næsta skipulagshring.